laugardagur, 3. janúar 2009

Játning

Ég átti frábær jól. Þau byrjuðu með yndislegum aðfangadegi og aðfangadagskvöldi með Eyrúnu Birnu og Davíð. Jólamaturinn heppnaðist frábærlega, mér til mikils léttis, og kvöldstundin með fjölskyldunni var hin ljúfasta. Ég mun aldrei aftur kvíða því að halda fámennt aðfangadagskvöld. A.m.k. ekki þegar það er svona góðmennt.

Á jóladag ákváðum við á hádegi að bjóða í smá jólakaffi. Allt í einu voru mættir til okkar 16 manns í kaffi, bollur, smákökur og jólaglögg og sökum fjölmennis var bara tilvalið að taka fram gítarinn og dansa í kringum jólatréð. Um kvöldið var okkur boðið í hangikjöt og félagsvist á Bivackgränden. Það var ekki leiðinlegt.

Annar í jólum kíktum við hjónin á útsölur - í sitthvoru lagi. Svo fórum við í jólaboð hjá Elvu Björk og Guðmundi (í sveitinni) sem buðu 17 manna saumó ásamt fjölskyldum í kaffi og Bingó. Dagurinn endaði svo í julefrokost að dönskum sið hjá Tomma og Möggu í Dragör (DK) með stórfjölskyldunni allri. Mamma og pabbi voru komin, ásamt Friðrik og Elísabetu og Katrínu Þóru. Það var svo gaman að sjá þau öll.

Þann 27. des fórum við nokkur á Hnotubrjótin, tókum svo pizzu og spil hjá Tomma í Dragör og svoleiðis liðu jólin. Dómkirkjuskoðun, hangikjöt og litlu jól í Lundi þann 28. des. Útsöluskoðun, rólóferð og sjóbað ásamt jólaglöggi og gamlárskvöldsskipulagningu þann 29. des. Jólatívolí með hersingunni allri þann 30. des ásamt dýrindis kvöldverði á Wagamama sem stendur sko alltaf fyrir sínu. Síðasta dag þessa endemis árs safnaðist svo 12 manna stórfjölskyldan saman í Dragör, undirbjó veislu kvöldsins og fagnaði svo með skaupi, flugeldum, Singstar og alvöru áramótastemmningu með ýmsu tilheyrandi eins og leigubílabið fram undir morgun o.fl. Nýarsdagur blandaðist þreytu og þynnku en við í Dragör hlóðum okkur þó samt inn í okkar fjallabíl með nesti og spil, leikföng og teiknimyndir og áttum nokkrar góðar klukkustundir með Íslandsgenginu í íbúðinni þeirra í Frederiksberg áður en leiðir skildu.

Þessir dagar voru alveg frábær. Við vorum mörg, sem hafði kannski þá einu slæmu hlið að ég fékk ekki að drekka í mig alla kosti hvers og eins þeirra sem ég sakna svo ógurlega mikið, en klárlega þá yfirgnæfandi góðu hlið sem sú tilfinning er að hafa alla sem standa manni næst í kringum sig á sama tíma. Þegar ég leit yfir stofuna mína á litlu jólunum og sá alla sitja þar prúðbúna við hangikjötsborðið... þá var gaman.

Játningin er bara sú að kveðjustundin var erfiðari en ég hélt. Árskiptin voru líka erfiðari en ég hélt. Ég táraðist yfir áramótaskaupinu – það er glæný lífsreynsla. Ég átti erfitt með að halda aftur af tárunum yfir innlenda fréttaannálnum á nýársdag. Ég táraðist margoft við tilhugsunina í gær um að fólkið mitt væri á heimleið og óvíst um hvenær þau kæmu aftur – eða hvenær ég kæmist heim. Mig langar heim og játa það hér með. Ég hugsa daglega til Íslands, vina minna og fjölskyldu þar en einnig ástandsins sem þar ríkir. Mér finnst erfitt að vera hér þegar ég vil svo miklu frekar vera þar þrátt fyrir að hér hafi ég alls ekki yfir neinu að kvarta – tja nema kannski peningaleysi. Ég er með heimþrá.

3 ummæli:

Guðrún Birna sagði...

Þetta hljómar ekkert smá vel! Yndislegt og skemmtilegt og mikið prógram ala Ásta :-) Gangi þér vel í lærdómi mín kæra. Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga...

xoxo
GB

Nafnlaus sagði...

æ dúllan mín.
nú förum við að plana saumó hjá þér.
mig langar svoooo að koma í heimsókn.
stórt knús frá mér.
anna.

Stizzling sagði...

Æi dúllan mín..
Þessi jól hljóma nú bara með þeim bestu sem ég hef vitað til.. Ég var sjálf með ofsa mikla heimþrá yfir hátíðarnar, skrítið að vera í landi þar sem maður á ekki einn einasta fjölskyldumeðlim (blóð), en sem betur fer er fjölskyldan mín hérna úti alveg yndisleg, hefði bara ekki getað þetta án stuðnings allra þeirra!
En að sakna einhvers svona mikið, og þá sérstaklega eftir svona góða tíma saman, þýðir bara það að þú átt sko heldur betur góða að!!!
Knús og kossar á ykkur,
vonandi sjáumst við svo á þessu ári.. Ég veit ekki hvort ég geti dílað mikið lengur við þennan söknuð!!!
Gangi þér vel í skólanum elskan mín!!
Stína